Mamma ákvað að læsa síðunni. Lykilorðið er nafnið á bænum þar sem Afi Sigurjón er fæddur og uppalinn með stórum staf.








Ég fæddist á Landspítalanum 1. febrúar 2003 sem var laugardagur kl 18:50. Ég var 15 merkur og 54 cm. Ég er á leikskólanum Fossakot í Grafarvoginum og þar finnst mér sko gaman að vera. Nú er ég sko orðin 3ja ára skvísa og rosalega dugleg.

Lilypie 4th Birthday Ticker



Dóttir mín

Elsku yndislega dóttir mín.
Ég veit að ég á ekki alltaf auðvelt með að tjá tilfinningar mínar.
En nú langar mig til að segja þér hvað ég elska þig mikið.
Mig langar til að segja þér hug minn.
Ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki fengið þig inn í líf mitt.
Þú ert mér allt.
Þú ert súrefnið mitt, andardrátturinn minn og löngun mín til að lifa.
Hamingjan mín hófst með komu þinni í þennan heim.
Í dag horfi ég á þig og er hissa á því hvað þú ert raunveruleg.
Ég er svo ótrúlega heppin að hafa fengið þig inn í líf mitt, og að fá að hafa þig mér við hlið í gegnum lífið.
Þú ert gullið mitt, fjársjóðurinn minn.
Ég hef reynt að læra sem mest af þér í gegnum tíðina.
Ég reyni að meta þig að verðleikum.
Þú hefur kennt mér svo margt um lífið, sem ég annars hefði farið á mis við.
Hvar væri ég án þín?

Ég elska þig elsku dóttir mín, nú og að eilífu.






Vatnsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem það er í fataburði, hugsun eða hegðun. Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir snemma að tjá sig og skila heim fullorðinna. Litli vatnsberinn vill sjá um sig sjálfur og fara sínu fram og er oft á tíðum mjög dramatískur. Ef honum leiðist gæti hann átt það til að stofna til vandræða bara til að fá spennu og drama inn í líf sitt. Besta uppeldisaðferðin er fólgin í umræðu og skynsamlegum fortölum. Vatnsberinn er þrjóskur og lítið þýðir að skipa honum fyrir eða beygja hann til hlýðni með skömmum. Best er að koma fram við barnið sem vitsmunalegan jafningja því vatnsberinn er hugarorkumerki og því skipa umræður og skynsamlegar fortölur fyrsta sæti. Vatnsberabörnin geta sýnt ást og væntumþykju á frekar ópersónulegan hátt. Þau eru yfirleitt vingjarnleg og yfirveguð en ekki mjög tilfinningasöm og oft illa við mikið kjass.



Ég var skírð 9. mars 2003 og fékk nafnið Guðrún Dís í höfuðið á ömmu Gunnsu, ömmu Dísu, Hjördísi frænku og langömmu minni Guðrúnu.

Nafnið Guðrún er myndað af forliðnum "Guð" sem merkir guð, - goð og viðliðnum "rún" sem merkir dulin, - vinur í raun.

Nafnið Dís merkir heilladís og er algengur viðliður.








Ég fæddist á Landspítalanum þann 8.ágúst 2005. Ég valdi mér flotta kennitölu eins og systa og kom á mettíma og með látum í heiminn 5 dögum fyrir settan dag. Ég bý í Grafarvoginum með mömmu og systu og ég er á leikskólanum Fossakot.

Lilypie 1st Birthday Ticker




Fyrir mæður drengja

Drengir eru breytilegir að stærð, þyngd og lit.
Þeir eru alls staðar - uppi á öllu og niðri í öllu, klifrandi, hlaupandi og stökkvandi.
Mæður elska þá, eldri systur og bræður umbera þá,
fullorðnir virða þá ekki viðlits, og Drottinn verndar þá.
Drengur er Sannleikur með óhreinindi í andlitinu,
Viska með tuggugúmmí í hárinu og Von framtíðarinnar með ánamaðk í vasanum.
Drengur hefur matarlyst eins og hestur, meltingu eins og sverðagleypir,
orku eins og vasaatómsprengja, rödd eins og einræðisherra.
Hann er gæddur forvitni kattarins, ímyndunarafli skáldsins, feimni fjólunnar,
viðbragðsflýti veiðibogans, funa flugeldsins, og þegar hann býr eitthvað
til, hefur hann fimm þumalfingur á hvorri hendi.
Hann kann vel að meta rjómaís, hnífa, sagir, myndabækur, skóga, vatn
(í sínu náttúrulega umhverfi), stór dýr, pabba, bíla,
laugardagsmorgna og brunabíla.
Hann er lítið fyrir sunnudagaskóla, barnaskóla, myndalausar bækur,
spilatíma, hálsbindi, rakara, stelpur, frakka, fullorðna eða háttatíma.
Enginn er eins árrisull, og enginn eins síðbúinn til matar og hann.
Enginn nema hann getur troðið í einn vasa ryðguðum hníf, hálfétnu epli, þriggja
feta snærisspotta, þremur blossateinum, tuttuguogfimmeyringi, vatnsbyssu,
og dularfullu áhaldi, sem enginn þekkir nema hann.
Drengur er sannkölluð töfravera - þú getur lokað hann úti úr vinnustofunni
þinni, en þú getur ekki lokað hann út úr hjarta þínu. Þú getur fengið hann
burtu úr skrifstofunni þinn, en þú getur ekki fengið hann burtu úr huga
þér.
Það er eins gott að gefast upp strax - hann er fangavörður þinn, húsbóndi
og herra - freknóttur ólátabelgur. En þegar þú kemur heim á kvöldin með
allar borgir vona þinna og drauma hrundar, getur hann reist þær aftur með
tveim töfraorðum - "Halló mamma!"







Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt.




Ég var skírður 11.september og fékk nafnið Patrekur Jón. Patrekur er bara út í loftið því að mömmu og pabba þykir það svo fallegt og passa mér svo vel en svo heiti ég Jón í höfuðið á afa Nonna og afa Sigurjóni

Nafnið Patrekur er leitt af latneska nafnorðinu "patricus" sem merkir aðalsmaður. Önnur hugmynd er sú að nafnið sé komið af latneska nafnorðinu "pater" sem merkir faðir.

Nafnið Jón er stytting á nafninu "Jóhannes" sem merkir Guð er náðugur








Mamma okkar heitir Sigrún Dóra Jónsdóttir og pabbi okkar heitir Barði Sigurjónsson.







Þú ert gestur nr. 20614